|
laugardagur, 10 október 2009 |
|

Kvöld á Varmalandi Skólagistingin fór vel fram og var bæði nemendum og foreldrum til sóma. Minnum á foreldraviðtöl á þriðjudag. Skólabílarnir fara þá frá skólanum klukkan 12:30 |
|
|
miðvikudagur, 07 október 2009 |
|
Magnús Ólafsson faðir nemanda við Varmalandsskóla kom færandi hendi og gaf okkur nokkur íþróttatæki svo sem kúluvarpskúlur, æfingaspjót, grindur og bolta. Dóttir hans hafði verið að tala um að það vantaði tæki til að halda uppi fjölbreytni frjálsra íþrótta, og þá fannst honum upplagt að gefa skólanum þessa gjöf. 
Magnús Ólafsson og Íris Grönfeldt Þökkum Magnúsi fyrir rausnarlega gjöf. Nemendur Varmalandsskóla
|
|
|
miðvikudagur, 07 október 2009 |
|
MUNIÐ Skólabílar fara frá Varmalandsskóla klukkan 12:30 fimmtudaginn 8.október vegna foreldraviðtala |
|
|
miðvikudagur, 07 október 2009 |
|

Allir læra dönsku á dönskum dögum á Varmlandi...hér er starfsliðið í kennslustund... |
|
|
þriðjudagur, 06 október 2009 |
|
Nemendafélagið minnir á gistingu 9. október. Nánari upplýsingar má finna hér til vinstri undir - Nemendavefur - skólablað |
|
|
þriðjudagur, 06 október 2009 |
|
Fjölmiðlahópurinn Bjarki, Bragi og Hera gerði stuttmynd sem hægt er að nálgast hér. 
Danskir dagar Í dag var mjög fjölbreyttur dagur hjá okkur Varmlendingunum. Okkur var skipt í hópa og við sett á mismunandi stöðvar sem tengdust bara dönum og dönsku. Okkar hópur „hópur 2“ fór í stöð sem kallaðist „Danskir leikir“ eða „Stöð 2“. Það var mjög fróðlegt og fræðandi. Leikirnir sem við fórum í voru meðal annars nafnaleikur (ágiskunarleikur sem felst í því að allir einstaklingarnir í hópnum fengu nöfn límd á ennið og áttu að finna út hver þeir voru), annar leikur var ratleikur (Fylgja dönskum fyrirmælum á ákvörðunarstaði) og svo litaleikurinn (Einn var hann og stóð upp við töflununa á meðan að restin var hinum megin við stofuna og beið eftir upplýsingum frá þeim sem var hann, ef sá sem var hann bað um fólk í rauðri peysu taka 1-3 stór eða lítil skref, áfram eða afturábak, mundu restin hlýða, hvernig skref eða hopp áfram eða afturábak voru ákvörðum hans sem var hann). Kennarar í þessum hóp eru þær hugmyndaríku, eldhressu Agnes Guðmundsdóttir og Ragnheiður Ásmundardóttir. Jóhannes Magnússon þakkar fyrir sig........... og Svanur líka! |
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 92 - 104 af 312 |