Forsíða
 
 
 
Forsíða
Fréttir
Um skólann
Skólastarfið
Nemendur
Atburðadagatal
Myndasafn
Tenglar
Innritun nemenda
Leit
Hosiló
Mötuneyti
Nemendavefur
Comenius - verkefni
Grænfáni
- - - - - -
Vefpóstur
Hafðu samband
Íþróttamiðstöðin Varmalandi
 
Verkefnabanki Gróu Erlu

 
 
 
 
Innskráning á vef





Týnt lykilorð?

 
 
 
 
Jólagleði gleði gleði
miðvikudagur, 16 desember 2009

Image

Fimmtudagurinn 17. desember

Athugið nemendur fara frá skólanum með skólabílunum  Kl:1300

Föstudagurinn 18. desember

Þessi dagur verður ekki hefðbundinn kennsludagur heldur mæta nemendur með foreldrum og ættingjum á Jólaskemmtunina kl. 14:00.

Á jólaskemmtuninni verður kaffihlaðborð þar sem ágóðinn fer í ferðasjóð 9.bekkjar.

Verð fyrir fullorðna 1000 krónur,  verð fyrir börn eldri en 6 ára 500 krónur en þó er aldrei borgað fyrir fleiri en tvö börn.

 
Vinabekkir
þriðjudagur, 15 desember 2009

Heimsókn

ImageImage

5. bekkur kom í heimsókn til 10. bekkjar í dag. Þar var tekið á móti gestunum með kostum og kynjum. . Fyrst var farið í leiki s.s. hlutverkaleik þar sem 5. bekkingar áttu að leika eitthvað í tengslum við jólin og eldri krakkarnir áttu að giska á hvað þau voru að leika. 5. bekkingarnir voru einnig með glaðning. Þau gáfu 10. bekk litla pakka og jólakort. Eldri krakkarnir gáfu þeim einnig jólakort. Eftir það var boðið uppá piparkökur og heitt kakó, síðan var bara hádegismatur að hætti Kristjáns kokks.

Jóhannes Magnússon 10.bekk

mosimage}Image

 
Jólaballið
föstudagur, 11 desember 2009

Image

Jóladansleikur samstarfsskólanna fór vel fram eins og búast mátti við.

ImageImage

Plötusnúðarnir hófu ekki leik fyrr en um áttaleytið þar sem þeir brunuðu framhjá Baulu í áttina að Bifröst......þeir gleymdu að beygja...

Lesa meira...
 
Starfsdagur
fimmtudagur, 03 desember 2009

Starfsdagur 4. desember

Image

Allir krakkarnir á Varmalandi mynduðu vinakeðju upp á Laugahnjúk 1. desember. Þegar upp var komið var kveikt á jólastjörnu skólans sem nú lýsir upp hug og hjörtu Varmlendinga.

Image

 
Jólaball unglingadeildar
þriðjudagur, 01 desember 2009

Image

Jólaball Varmalandsskóla verður haldið í íþróttahúsinu fimmtudaginn 10. desember.

Við bjóðum hjartanlega velkomna krakka frá Borgarnesi, Kleppjárnsreykjum, Búðardal, Reykhólum, Heiðarskóla og Laugagerði
Það verður feikna fjör, Robbi Disco mun sjá um að þeyta skífum og halda
uppi stuðinu.
Húsið opnar klukkan 19:30 og  herlegheitin enda síðan  kl 23:00
Miðaverð er 1500 kr  og er happdrættisnúmer á hverjum seldum miða.
Girnileg sjoppa verður á staðnum.

Hlökkum til að sjá ykkur í jólaskapi.

Nemendafélag Varmalandsskóla

 
Beiðni frá skólastjóra
föstudagur, 27 nóvember 2009

Kæru foreldrar/forráðamenn!

Sérstök beiðni hefur komið frá bílstjórum skólabifreiða um að láta foreldra vita að nemendafjöldi í skólabifreiðunum er þannig skipaður að ekki er um aukasæti að ræða. Nokkuð hefur borið á því að nemendur eru að fá að fara heim með öðrum nemendum eftir skóla og geta þá skapast vandræði því ekki er aukasæti í bílunum.
Vinsamleg tilmæli til ykkar eru því að hafa samband við skólabílstjóra og athuga hvort möguleiki á ferð sé fyrir hendi áður en ákveðið er að veita leyfi fyrir heimferð með öðrum.
Símanúmer skólabílstjóra er að finna á heimasíðu skólans.
Með vinsemd og virðingu,
Ingibjörg Inga

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 66 - 78 af 312
 
 
 
 
A+ | A- | Reset
Ágúst 2010 September 2010 Október 2010
Þr Mi Fi La Su
Week 35 1 2 3 4 5
Week 36 6 7 8 9 10 11 12
Week 37 13 14 15 16 17 18 19
Week 38 20 21 22 23 24 25 26
Week 39 27 28 29 30
Á döfinni
Það er ekkert á döfinnni næstu daga

 
 

 

Varmalandsskóli, 311 Borgarnes, sími 430-1500, netfang: varmaland@varmaland.is