|
mánudagur, 03 mars 2008 |
Varmalandsskólavefurinn hefur fengið til liðs við sig tvo nýja fréttamenn. Jóhann Óla og Ásgeir Jarl. Munu þeir sjá að mestu um allan flutning af árshátíðinni og undirbúningi hennar.Hér kemur fyrsta frétt.
3 dagar til árshátíðar
Dansæfing
Dagurinn í dag var óvenjulegur. Nemendur og kennarar Húsó brutu upp kennslu til að undirbúa árshátíðina. Leiklistarkrakkarnir fór að æfa leikritið, danshópurinn fór að dansa, kvikmyndahópur að skipuleggja myndatökur næstu daga meðan restin fór í það að búa til auglýsingar, miða og súkkulaðihrískökur.
Árshátíðin verður næstkomandi fimmtudagskvöld og verða sýnd dansatriði og leikrit og að venju verða kaffi og kökur í boði.
|
|
|
fimmtudagur, 28 febrúar 2008 |
7 DAGAR TIL STEFNU
Nú er aðeins ein vika þangað til Varmlandsskóli heldur sína árshátíð. Ein vika og svo margt eftir að gera...............................
Leikstjórinn okkar
|
|
|
fimmtudagur, 28 febrúar 2008 |
|
Árlegt upplestrarkvöld nemenda í 5. til 7. bekk var haldið í Þinghamri
> miðvikudagskvöldið 27. febrúar. Lesnar voru sögur af viðskiptum Sæmundar
> fróða og Kölska og eins og alþekkt er hafði Sæmundur jafnan betur í þeim
> átökum. Ekki þarf að hafa mörg orð um lesturinn, hann tókst prýðilega og var
> hin besta skemmtun fyrir alla sem á hlýddu. Gaman að sjá og heyra hve margir
> góðir lesarar leynast í hópnum og án vafa hafa krakkarnir gott af því að
> koma fram fyrir hóp af fólki og sýna hvað í þeim býr. Umsjónarkennarar hafa
> séð um æfingar síðustu daga og vikur og ásamt Berki önnuðust þeir dómgæslu.
> Mat á upplestri er vandasamt því enginn kvarði er til sem bregða má á
> keppendur en niðurstaða dómara var að sigurvegarar væru:
5.bekkur: Jóhanna Rut Róbertsdóttir, Ómar Ólafsson
6.bekkur: Fanney Guðjónsdóttir, Ólafur Geir Árnason
7.bekkur: Auður Katrín Víðisdóttir, Þorvaldur Ragnar Þorbjarnarson
>
> Auður og Þorvaldur verða svo fulltrúar skólans í Stóru
> upplestrarkeppninni sem haldin verður í Borgarnesi miðvikudaginn 12 mars.
> Vonandi gengur þeim vel þar.
>
> Takk fyrir skemmtilegt kvöld.
>
|
|
|
miđvikudagur, 27 febrúar 2008 |
8 dagar eftir
Nú eru aðeins átta dagar til árshátíðar og spennan eykst. Leiklistarhópurinn kom saman kl. 10.30 i morgun til aukaæfingar.Árshátiðin 6. mars. og hefst hún klukkan átta um kvöldið.
|
|
|
ţriđjudagur, 26 febrúar 2008 |
 9 dagar til árshátíđarNú eru 9 dagar til árshátíđar. Nemendur eru ađ ćfa frumsamiđ leikrit undir styrkri stjórn Guđmundar Inga Ţorvaldssonar. Hljómsveitin ćfir og ćfir en vill ekkert gefa upp um lagaval. |
|
|
Upplestarkeppni 5. - 7. bekkjar |
|
föstudagur, 22 febrúar 2008 |
Upplestarkeppni 5. 6. og 7. bekkjar verður haldin í félagsheimilinu Þinghamri miðvikudaginn 27. febrúar. Nemendur þessarra bekkja hafa undanfarnar vikur æft stíft fyrir þessa keppni og á miðvikudagskvöldið verður árangurinn opinberaður. Þessi keppni er undanfari árlegrar upplestarkeppni 7. bekkjar. Á hverju ári etja bestu lesarar bekkjarins kappi við fulltrúar annarra skóla á Vesturlandi, að Akranesskólum undanskildum.
Undanfarin ár hafa nemendur Varmalandsskóla staðið sig með miklum ágætum í þessari keppni.
Vonandi eiga sem flestir heimangengt þetta miðvikudagskvöld.
Dagskráin hefst kl. 20:00. Allir velkomnir.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 21 22 23 24 Nćsta > Endir >>
|
| Úrslit 274 - 286 af 312 |