Varmaland er staðsett í Stafholtstungum í Borgarbyggð í tungunni milli Þverár og
Norðurár, lítill þéttbýlisstaðurí ægifögru
umhverfi sem rammar m.a. inn Varmalandsskóla, íþrótta-og
félagsheimilið Þinghamar og gróðrastöðina Laugaland. Varmalandsskólier einsetinn grunnskóli sem stofnaður
var árið 1954 og hefur starfað óslitið síðan. Skólahverfið nær yfir
uppsveitir Borgarbyggðar norðan Hvítár. Svæðið er víðfeðmt og skólinn er heimanakstursskóliþar sem nemendur koma að morgni og fara heim
að skóla loknum dag hvern. Kennsla fer
fram annarsvegar í barnaskólahúsnæðinu þar sem 1.-7. bekkja nemar njóta kennslu
og hins vegar í gamla Húsmæðraskólanum þar sem nemendur í 8.-10. bekk stunda nám.
Heilmiklar
endurbætur standa nú yfir í húsmæðraskólahúsnæðinu
sem áætlað er að ljúka innan árs og í beinu framhaldi af þeim verður ráðist í endurbætur og uppbyggingu á barnaskólahúsnæðinu, auk
endurbóta á bílastæðum og skólalóð.
Fyrir um
það bil 10 árum hafði nemendum í Varmalandsskóla fækkað töluvert, en á þeim
tíma tók aðsókn að Viðskiptaháskólanum á Bifröst í Norðurárdal að aukast og
mikil uppbygging átti sér stað þar. Við það tók nemendafjöldinn á
Varmalandi mikinn kipp og síðan hefur fjölgað ár frá ári. Nemendur skólans í
dag eru 154 og starfsmenn hans rúmleg 30.
Árið 1992 var
stofnaður leikskóli á Varmalandi og eru 13 börn í honum í ár.