|
Til að innrita barnið þitt í Varmalandsskóla þarft þú að senda okkur eftirfarandi upplýsingar á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
: Nafn barns, kennitölu, lögheimili, heimilisfang ef annað en lögheimili og símanúmer. Þá þarf að gefa upp sömu upplýsingar um foreldra/forráðamenn, auk gsm-númers.
Varmalandsskóli leggur mikla áherslu á að taka vel á móti nýjum nemendum. Til að við getum tekið sem best á móti barni þínu og sinnt þörfum þess í námi þurfa ýmis gögn að fylgja því úr gamla skólanum. Þær vinnubækur sem barnið var síðast að vinna í frá gamla skólanum eru mjög nauðsynlegar til að við getum áttað okkur á stöðu nemandans í námi. Þá þurfa allar sérfræðiskýrslur sem til eru um nemandann að fylgja honum, s.s. skýrslur frá sálfræðingum, sérkennurum, talmeinafræðingum og sérkennsluráðgjöfum. Ljósrit af síðasta einkunnablaði þarf einnig að fylgja sem og niðurstöður úr samræmdum prófum í 4. og 7. bekk ef það á við. Og að lokum biðjum við um leyfi til að hafa samband við gamla skóla/leikskóla nemandans til að afla frekari upplýsinga ef okkur þykir þurfa.
Ef barnið kemur til með að eiga lögheimili utan Borgarbyggðar þurfa foreldrar að sækja um greiðslur skólagjalda til þess sveitarfélags sem barnið á lögheimili í. Það er gert með því að fylla út einfalt eyðublað sem hægt er að prenta út af eftirfarandi slóð á netinu, http://www.samband.is/files/1401020925umsokn_vegna_nams_utan_logheimilis.xls, og skila því til viðkomandi sveitarfélags. Afgreiðsla þessara umsókna tekur yfirleitt um eina til tvær vikur. Barnið getur ekki hafið skólagöngu í Varmalandsskóla fyrr en umsóknin hefur verið samþykkt af viðkomandi sveitarfélagi.
|