Forsíða arrow Grænfáni
 
 
 
Forsíða
Fréttir
Um skólann
Skólastarfið
Nemendur
Atburðadagatal
Myndasafn
Tenglar
Innritun nemenda
Leit
Hosiló
Mötuneyti
Nemendavefur
Comenius - verkefni
Grænfáni
- - - - - -
Vefpóstur
Hafðu samband
Íþróttamiðstöðin Varmalandi
 
Verkefnabanki Gróu Erlu

 
 
 
 
 
 
 
 
Grænfánaverkefni PDF Prenta Rafpóstur

Bréf til bekkja:

Grænfánaverkefni Varmalandsskóla, vorið 2009.

 

Stefnan hefur verið tekin er að fá alla nemendur og kennara til að spara pappír, endurnýta hann eins og hægt er ásamt öðru hráefni eins og föndurefni og fleira. Einnig verður lögð áhersla á að allir slökkvi ljósin í sinni skólastofu þegar farið er út úr henni og ekki er verið að nota hana. Þessi áætlun er hér sett fram í fjórum liðum.

1.      Skipaður umsjónamaður í hverjum bekk – daglega eða vikulega.

2.      Passa að slökkva ljósin þegar enginn er í stofunni og þegar við þurfum ekki rafljós.

3.      Ekki henda pappír  - heldur endurvinna hann.

4.      Nýta hráefni skólans vel og fara vel með eigur skólans.

Hver umsjónakennari getur síðan útfært umsjónamanns stöðuna í sínum bekk. Verkefni umsjónamanns er að framfylgja því að allir í bekknum fari eftir settum markmiðum svo að bekkurinn fái plús þegar að eftirlitsnefndin kemur til að kanna aðstæður, umsjónamaður á ekki að taka að sér alla vinnuna heldur að sjá um að allir gera það sem gera þarf til að framfylgja áætlun að settu marki. Áætlað er að eftirlit verði annað hvort viku- eða hálfsmánaðarlega fyrst til að byrja með á meðan nemendur ná tökum á verkefninu. Að auki leggjum við það í hendur hvers umsjónakennara að leyfa bekknum að útbúa merki sem minnir okkur á að slökkva ljósin og að setja pappírinn í endurvinnsluna.

 

Gangi ykkur vel,

Umhverfisnefnd Varmalandsskóla

 

 

Fimmtudagur  13.nóvember 2008

Fundur í umhverfisnefnd.

 

Fundinn sátu Ása Erlingsdóttir, Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, Ingunn Jóhannsdóttir, Hallgerður Kolbrún Jónsdóttir og Svanur Grétarsson.

Þetta er fyrsti fundur í næstum fullskipaðri umherfisnefnd og var hann nýttur til að reifa helstu stefnu sem tekin hefur verið í vinnunni að því að fá grænfána.

Inga skólastjóri og Ása verkefnisstjóri höfðu hist áður og sóttu þá um að skólinn yrði skóli á grænni grein. Núþegar er skólinn búinn að fá samþykki og er orðinn skóli á grænni grein. Einnig ákváðum við þá að fá einungis tvo fulltrúa nemenda til að starfa með okkur til að byrja með að því að gera þarf. Einn af unglingstiginu – sem er Svanur -  og einn af miðstiginu -  sem er Hallgerður Kolbrún. Tóku þau bæði vel í það.

Fyrsta málefni á dagskrá var umræða við Ingunni leikskólastjóra um hvort að leikskólinn væri búinn að sækja um. Hún sagði ekki svo vera vegna þess að nú væri mikill niðurskurður og þar sem um árgjald væri að ræða. Þá kom upp hugmynd um að athuga hvort að við hefðum leyfi til að vinna þetta saman og ætlar Ása að hringja inn í Landvernd til að fá svar við því. Leikskólinn er samt byrjaður að halda til haga því sem má endurvinna, eins og fernum og pappír.

Næsta mál var að kynna verkefnið og ferilinn fyrir fulltrúum nemenda. Fórum við með þeim yfir skrefin 7 sem tengjast grænfána verkefninu. Með þessum fundi má segja að við séum komin með fyrsta skrefið á flug – að við skólann starfi  virk umhverfisnefnd.

Skref 2 -  Þar er stefnan að fara að taka ástandið í skólanum út og munum við nota gátlista til þess. Ekki er hægt að leggja alla þá vinnu á þessa tvo nemendafulltrúa þannig að við ákváðum að leyfa þeim að nefna hvort með sér tvo fulltrúa til þeirra starfa. Þetta verkefni er áætlað að framkvæma fyrir jól svo að hægt sé að fara í áætlanavinnu eftir áramót.

Svanur 9.bekk  – Bjarki Þór 9.bekk og Sigríður 10.bekk.

Hallgerður Kolbrún 6.bekk – Þorbjörg Saga og Ragnheiður 5.bekk.

Hugmyndin er að næsta ár verður Svanur áfram fulltrúi í unglingadeild en þá mun Hallgerður einnig vera fulltrúi unglingadeildar. Þá munum við fá til liðs við okkur nýjan fulltrúa í barnadeild.

Þriðja mál var að kynna fyrir umhverfisnefndinni að ákveðið hefur verið að setja af stað samkeppni um merki og slagorð skólans undir merkjum grænfána. Talað hefur verið við bekkjarkennara um að þeir stýri sínum hópum í þessari vinnu. Ætlunin er að samkeppnin geti farið af stað fyrir jólafrí.

Hugmynd frá nemendum er að halda fundi tvisvar í mánuði í umhverfisnefnd. Sérstaklega nú til að byrja með á meðan að vinnan er að fara af stað. Því er áætlað að halda fund fimmtudaginn 27. nóvember.


 

 

Að lokum báðum við nemendafulltrúa um að koma með hugmyndir af því sem hægt er að bæta í anda grænfána í skólanum:

-          Hætta að setja pappír í ruslið.

-          Endurvinna pappír – t.d. föndur.

-          Slökk va ljósin þegar við erum ekki að nota þau.

-          Spara vatnið – ekki láta það renna að óþörfu.

-          Einnig kom upp hugmynd að búa til kerti í jógúrtdósum.

------------------------

2. Fundur

Fimmtudaginn 27.nóvember 2008

2. Fundur hjá umhverfisnefnd Varmalandsskóla             

 

Fundinn sátu Ása, Hallgerður og Svanur.

 

Spjallað á rólegu nótunum um framhaldið.  Hvernig við myndum fara að því að skoða ástandið í skólahúsnæðinu sem við höfum yfir að ráða. Ákveðið var að þrír nemendur úr yngri deild myndu skoða húsnæði  unglingadeildarinnar og meta það en þrír nemendur úr eldri deild færu þá yfir í barnaskólahúsið og skoðuðu ástandið þar.

Nemendur úr yngri deild : Hallgerður 6.b, Þorbjörg Saga 5.b og Ragnheiður 5.b.

Nemendur úr unglingadeild :  Svanur 9.b, Bjarki Þór 9.b og Sigríður 10.b.

Fulltrúar í umhverfisnefnd völdu þessa einstaklinga með sér  og farið verður í þessa könnun á ástandinu í desember.

Einnig var rætt um hvað það væri sem helst bæri að skoða, farið yfir gátlista sem við höfðum fengið hjá Landvernd og reynt að ákveða hversu langan tíma þetta gæti tekið.

Ákváðum að leggja áherslu á tvo þætti þegar talað yrði við bekkjardeildirnar :  Hvernig nýting þeirra væri á blöðum og hvort að þau slökkvi ljósin þegar enginn er í skólastofunni.

Fjölluðum einnig almennt um hvernig við gætum nýtt gamla hluti og gefið þeim nýtt hlutverk og komu margar hugmyndir fram.

-          Búa til kerti úr afgöngum

-          Nýta blöð til föndurs

-          Gera eitthvað úr pappamassa

-          Taka niður kennaratyggjó og nýta það aftur

-          Og svona mætti lengi telja.

 

Létum þetta nægja að sinni og ákváðum að eyða kröftunum í að skoða ástandið næstu vikur og fram að áramótum.

Ritari Ása Erlingsdóttir

 

Fyrir næsta fund ætlum við að hafa gátlistana klára svo að krakkarnir geti kynnt sér þá áður en þeir fara og kynna það fyrir samstarfsmönnum sínum í umhverfiseftirlitinu. Í framhaldinu verður farið í bæði skólahúsin og leikskólann til að fara yfir málin.

Fundarritari Ása.

 
 
 

 

Varmalandsskóli, 311 Borgarnes, sími 430-1500, netfang: varmaland@varmaland.is