|
Varmalandsskóli tekur þátt í Comeníusaraverkefni sem stendur frá 2009 - 2011. Skólinn er í samstarfi við skóla í Slóveníu og á Ítalíu. Verkefnið snýst um að finna og kynna 6 merka staði, byggingar eða einstaklinga fyrir hinum skólunum og nemendum Varmalandsskóla. 9. bekkur fer í ferð á Eiríksstaði í Dölum og ætla nemendur að taka þar upp nokkur atriði úr Laxdælu á videó. Það er fyrsti staðurinn sem Varmalandsskóli ætlar að kynna. Á verkefnistímanum munu nemendur skrifast á með tölvupósti á ensku. Næsta vor koma nemendur og kennarar frá Ítalíu og Slóveníu til Íslands og tökum við þá á móti þeim. Vefsíða verkefnisins: http://sylwen.ic.cz/
|