|
þriðjudagur, 10 ágúst 2010 |
|
Það styttist í skólabyrjun. Í GBF er undirbúningsvinna
hafin og gengur vel. Þann 16., 17., og 18. ágúst munu starfsmenn
skólans ásamt fulltrúum foreldra og starfsfólki úr stoðþjónustu hans
taka þátt í stefnumótunarvinnu, eftir það hefst undirbúningur kennara
og starfsfólks fyrir komandi skólaár.
Nokkuð hefur verið um að foreldrar spyrji um innkaupalista og munum við setja þá á vef skólans í lok næstu viku.
Skólasetning verður föstudaginn 27. ágúst og kennsla hefst samkvæmt
stundaskrá mánudaginn 30.ág. Skólasetning GBF að Hvanneyri verður kl.
10:00 í skólahúsnæðinu, GBF að Varmalandi kl. 12:30 í Þinghamri og í
GBF að Kleppjárnsreykjum í matsal skólans kl. 14:30.
Að skólasetningu lokinni verða námsefniskynningar sem eru í höndum umsjónakennara.
Verið er að vinna að nýrri heimasíðu fyrir skólann og slóðin er http://www.gbf.is.
Á upphafsíðunni verða upplýsingar sem eiga sameiginlega við um allar
deildir og þar verða sérstakir linkar inn á hverja deild fyrir sig.
Þar verður hægt að nálgast upplýsingar um starfsemi viðkomandi
starfsstöðvar.
Ef einhverjar spurningar vakna þá endilega hafið samband við skólastjóra eða deildarstjóra viðkomandi deilda.
Með vinsemd og von um gott samstarf á nýju skólaári,
Skólastjórnendur
|
|
|
Grænfánanum flaggað 31. maí |
|
sunnudagur, 30 maí 2010 |
|
Grænfánanum verður flaggað í Varmalandsskóla mánudaginn 31. maí. í fyrsta sinn.
Foreldrar og forráðamenn, þið eruð velkomin í skólann til að taka þátt í þessum viðburði með nemendum og starfsfólki. Flaggað verður kl 13:00.
Minni á skólaslit þann 3. júní kl 14:00 í Þinghamri.
Boðið verður upp á kaffi og meðlæti í mötuneyti skólans að skólaslitum loknum.
Skólastjóri
|
|
|
miðvikudagur, 19 maí 2010 |
|

Suðrænt sund hjá 10. bekk Í dag var 10.bekkur í síðasta sundtíma sínum í grunnskóla. Suðrænt þema var hjá Írisi Grönfeldt.  
 
Suðrænir safar og ávextir voru á boðstólum og að lokum þá létu krakkarnir íþróttakennarinn sinn vaða í laugina. |
|
|
þriðjudagur, 18 maí 2010 |
|
Hreðavatn - Veiðiferð 1.-3.bekkur 
Miðvikudaginn 19.maí fara 1. - 3.bekkur í veiðiferð að Hreðavatni. Lagt verður af stað eftir morgunmat með nesti og nýja skó. Dvalið verður allan daginn við veiði og leik. Fimmtudaginn 20.maí fara 4.- 6. bekkur í veiðiferð að Hreðavatni. |
|
|
Gönguferð unglingadeildar |
|
mánudagur, 17 maí 2010 |
|
Gönguferð 8., 9. og 10. bekkja 20. og 21. maí Ferðatilhögun: Við erum að skoða tvær gönguleiðir í ár og látum ykkur vita á miðvikudaginn hvor leiðin verður gengin. Leið 1: Gengið verður inn Kjarardal, inn að Gilsbakkaseli og gist þar. Seinni daginn verður gengið yfir Síðufjall suður í Hvítársíðu. Leið2: Gengið frá Grenjum upp með Langá, að Langavatni og að gangnamannaskálanum við Langavatn. Daginn eftir verður gengið með Vikrafelli að Bifröst. Þangað munum við koma milli kl. 14:00 og 15:00 og sjá þá foreldrar um að sækja nemendurna. Þeir sem búa á Bifröst fara að sjálfsögðu beint heim. Fararstjórar verða Agnes og María alla ferðina og Imba og Ingibjörg Jónsd. skipta með sér göngudögunum. Hvor leiðin sem verður valin þá verður gist í gangnamannakofum, þar borðum við kvöldverð, og höldum kvöldvöku. |
|
|
Göngu- og hjólaferð 5. og 6.bekkjar |
|
mánudagur, 17 maí 2010 |
Göngu- og hjólaferð 5. og 6. bekkjar 
Þriðjudaginn 25. maí ætla fimmti og sjötti bekkur að fara í árlega göngu- og hjólaferð. Lagt verður af stað frá Svartagili í Norðurárdal og gengið að Arnbjarnarlæk í Þverárhlíð. Frá Arnbjargarlæk verður síðan hjólað að Lindarhvoli og þar verður borðað nesti. Frá Lindarhvoli verður hjólað framhjá Höll og Einifelli að Varmalandi.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 13 af 312 |